|
|
12.10.2006 01:53:22 / Olason
Þá er komið að leiðarlokum hjá þessarri blessuðu síðu þar sem ég
ætla að reyna að gera örvæntingarfulla tilraun til að lífga upp á
minn blogg feril hef ég ákveðið að slútta þessu helvíti og byrja á
nýjum stað og byrja á byrjun. en nýja bloggið er
runarola.bloggar.is
»
13.08.2006 02:57:18 / Olason
Já aldrei fór það svo að maður
færi ekki að hripa einhverju niður á tölvuna og setja saman í
eitt stykki pistil á blog.central.is/runarola en já allt er að fara á fullt
hjá karlinum sumarið búið samkvæmt reglu 1 í sumarfríalögum
Rúnars Óla en hún hljómar nokkurn vegin svona
,,mínutuna sem viðkomandi hættir að
vinna síðasta vinnudaginn af sumarvinnunni þá er sumarið
búið.’’
En það hefur margt á daga mína drifið
síðan ég skrifað síðast 16. Júní eins og t.d. maður varð tvítugur
10 dögum eftir það sama dag of maður fór til Danmerkur í einhverja
mestu sukkferð sem mann hefði órað fyrir þar sem maður fór á
Hróaskeldu tónlistarhátíðina og þar varð maður ekki vitni af verri
hljómsveitum en Sigurrós, Primal Scream, Strokes, Streets, Arctic
Monkeys, Franz Ferdinand, Placebo, Kaizer Chiefs, Deftones, Tool,
Kayne West (helvíti flottur), Scissor Sisters (Partý út í gegn),
Morrisey, Dylan og svo rúsínan í pylsuendanum var náttúrulega Roger
Waters það gerist ekki mikið betra en það. Þarna var líka tekið
einhvert rosalegasta fyllerí sem sögur fara af þarna fór ein Ouzo
flaska og 3 ½ kippa á einu kvöldi. og morguninn eftir eftir að hafa
farið drulluþunnur að kaupa mér einhvern sveittasta borgara sem ég
hef höndum mínum komið yfir (hrikalega góður þynnkumatur) fór maður
og splæsti á einn hróaskeldu stól á 500 kall og fór í
Snæfellsbúningin og settist út í sólina og var þar í 5 tíma sem á
þeim tímapunkti þótti alveg frábær hugmynd en svona eftir á að
hyggja var það ömurleg hugmynd þar sem ég brann til kaldra kola og
er ennþá með bóndabrúnkuna eftir það triple layer. En ferðin
byrjaði ekki mjög vel þarna úti þar sem þarna var ég komin og hafði
ekki tjald, dýnu eða svefnpoka og eftir einn pela af Famous Grouse
var maður orðin mjög málglaður búinn að vera að rífast við einhvern
norsara af því hann vildi borga mér fyrir bjór sem ég var að gefa
honum þar sem ég hafði ekki gott af honum en það endaði að ég fór
þaðan of fór að tala við einhvern hóp frá Nýja Sjálandi en já maður
var basiclly í ruglinu þetta kvöld talaði við hvern einasta mann í
100 metra radíus en það verður eflaust ekki leikið svo auðveldlega
eftir.
En já það er allt að fara á fullt hjá
Nemendafélaginu allir komnir á fullt nema ég þar sem ég er ekki
komin með gögnin í hendurnar þannig Maren flýta sér með þetta!!!
vorum einmitt núna í gær að skipuleggja veturinn og mér lýst bara
helvíti vel á þetta
En já er ekki komin tími á að kveðja
í bili og segja bara
Rúnar Óla kveður
»
16.06.2006 22:51:14 / Olason
Getur einhver sagt mér hvað það er sem ég á sameiginlegt með
mönnum eins og Bob Dylan, Roger Waters, Morrisey og hljómsveitum á
við Sigur Rós, Tool, Guns´n´roses, Franz Ferdinand, The Strokes,
Kayne West, Tool, Arctic Monkeys, Kaiser Chiefs, Placebo, The
Streets og truck loads af öðrum hljómsveitum. Veit það
einhver???
Jújú þú hafðir rétt fyrir þér núna eftir 10 daga er kallinn að
fljúga út til Köben og þaðan verður förinni heitið til Hróaskeldu
þar sem einmitt allar þessar hljómsveitir verða að spila og planið
er að sjá eins og nokkrar af þeim svo verður tekið nokkra daga
djamm í Köben en eins og Hörður komst vel að orði áðan þá er maður
dálítill norðurlanda djammari sem er nú alveg svosem rétt hjá honum
Hins vegar er eitt frekar slæmt við þetta en það er að ég
eiginlega missi af 20 ára afmælinu mínu en það mun ekki koma að
sök þar sem það verður tekið gott 9 daga djamm í Danaveldi en
takmarkið er að koma til baka ósofinn og ógeðslegur hvort það
tekst verður bara að koma í ljós. Þannig ef maður á að kaupa
einhvað fyrir ykkur þá talið við mig með góðum fyrirvara, en það
verður ekki áfengi þar sem ég ætla að kaupa eins mikið og ég má til
einkanota en annars bjallið bara í mig eða sendið SMS eða bara
einhvað 
En já ætla að fara að horfa á Supernatural,
Rúnar Óla kveður að sinni...
»
02.06.2006 22:54:56 / Olason
Jæja, aldrei fór það svo að ég skyldi ekki skrifa einhvað niður
hérna og er maður næstum því ennþá í skýjunum eftir kosningarnar en
þær enduðu svona líka vel á öllu vesturlandi nema kannski í
borganesi þar sem það vantaði svo lítið upp á 4 manninn þar en
svona er þetta can´t always get what you want. Svo fór maður í
bæinn í morgun til læknis og eins og venjan er hjá mér í þessum
læknisferðum þá skellti maður sér í Kringluna eftir tíman og keypti
sér eins og einn Geisladisk eða svo og varð diskurinn 10.000 days
með Tool og ég get ekki sagt annað en að þetta er alveg hrikalega
góður diskur þar sem þetta er ekki þessi venjulega Rúnska tónlist
eins og einhver myndi kalla þetta þar sem þetta er ekki hátt
skrifuð tónlistarstefna hjá mér en þetta er alveg ótrúlega góður
diskur og verður hann meðmælingur færslunar.
en ég ætla að enda þessa færslu á textanum úr laginu Nice guys
finish last með Green day sem er alveg hrikalega gott lag 
Nice guys
finish last.
You're running out of gas.
Your sympathy will get you left behind.
Sometimes you're at your best, when you feel the worst.
Do you feel washed up, like piss going down the drain
Pressure cooker pick my brain and tell me I'm insane.
I'm so fucking happy I could cry.
Every joke can have its truth and now the joke's on you.
I never knew you were such a funny guy.
Oh nice guys finish last, when you are the outcast.
Don't pat yourself on the back you might break your spine.
Living on command.
You're shaking lots of hands.
Kissing up and bleeding all your trust, taking what you need.
Bite the hand that feeds.
You lose your memory and you got no shame.
Rúnar Óla
kveður.
»
17.05.2006 23:28:12 / Olason
Jæja mættur aftur á svæðið eftir góða hvíld búin að fá út úr
prófunum... Ætla ekkert að fara nánar út í það hér nema
náttúrulega að ég er búinn með mitt ensku nám án þess að lesa bók
og er ég alveg helvíti sáttur með það og er það afrek út af fyrir
sig.
En annars er lítið að frétta og er ég byrjaður að vinna á fullu
núna og var fyrsti dagurinn í dag í Loft Orku og var ég búinn að
gleyma hvað það er rosalega skemmtilegt að vinna líkamlega erfiða
vinnu í staðinn fyrir þessi chill störf sem ég hef verið í núna 2
síðustu ár og er maður nánast alveg búin eftir fyrsta daginn en
engu að síður líður manni alveg ótrúlega vel.
Í gær var svo kíkti sumaræfinga Rúnar eins og Hörður vill kalla
mig í nesið á körfuboltaæfingu og er lang´t síðan að maður hefur
hitt svona vel og efast ég um að ég muni nokkur tíman gera það
aftur en maður vonar bara það besta.
En já klukkan er ekki orðinn 12 og ég er að fara að sofa, eini
gallinn við að þurfa að vakna svona snemma er að sofna snemma

Rúnar Óla kveður að sinni
»
20.04.2006 00:18:45 / Olason
Já Rúnar Óla mættur aftur í hús með einn brakandi ferskan.
En já páskafríið er nú búið og var það skóli aftur í morgun og
dröslaðist maður á fætur með miklum erfileikum um 7 leytið í morgun
búin að sofa yfir sig þannig maður missti af Boot Camp æfingunni,
helvítis kæruleysi en engu að síður komst maður í skólan á réttum
tíma og mætti ferskur í tíma hjá Steingrími Braga og fór út út
tímanum ekki alveg jafn ferskur.
En já það virðast vera skiptar skoðanir um þessa
vísindaferð/menningaferð eða hvað sem menn vilja kalla þetta og eru
að efast um tilgang ferðarinnar en það virðist ekki skipta neinu
þar sem skráning hefur farið vel að stað og 20 manns búnir að skrá
sig í morgun áður en Mjölnir fór í hús en það var aðal auglýsingin
fyrir ferðinna og verður farið á 50 manna rútu í bæjinn þannig
ég er þokkalega bjartsýnn á að þetta muni fyllast.
Tímabilið var að klárast hérna í körfunni og vil ég óska
Skallagrímsmönnum til hamingju með frábæran árangur í vetur en ég
var að heyra miður góðar fréttir fyrir Snæfellingana en það var að
Bárður sé búin að ákveða að láta þetta gott heita og leita að nýjum
áskorunum og eflaust mun hann finna það í ÍR þar sem doðinn hefur
verið yfir öllu, alltaf með góðan hóp en eru samt aldrei að valda
einhverjum usla og geri ég ráð fyrir því að það breytist núna á
næsta tímabili en hins vegar er ég mjög hræddur um að stjórn
Snæfells hafi ekki metnað í að finna mjög góðan þjálfara til að
fylla skarðið sem Bárður skylur eftir sig og láti sér nægja
einhvern eins og Hrein Þorkellsson en ég er samt vona að ég hafi
rangt fyrir mér þar sem að mínu mati er alveg jafn mikilvægt að
hafa góðan þjálfara og það er að hafa góða leikmenn.
En í dag var sett upp fyrsta kynningarplakatið um framboðið eGÓ
sem er að bjóða sig fram til aðalstjórnar NFFA og var ég að heyra
af einu mótframboði en það eru meðlimir Hommacrewsins sem ætla sér
að vinna okkur og vonandi verður einhver spenna í þessu 
En ætla að láta þetta gott heita þar sem það er að byrja góð
mynd á RÚV núna en það er Sleepy Hollow, lang síðan að maður hefur
séð hana.
Rúnar Óla kveður að sinni.
»
15.04.2006 19:29:15 / Olason
Jæja þá er komið að því, hin árlega vísindaferð ungra
sjálfstæðismanna á akranesi er í nánd. Fyrirhugað er að leggja af
stað frá FVA klukkan 17:00 föstudaginn 21. apríl nk. 20 ára
aldurstakmark er í ferðina, og að sjálfsögðu er frítt. Farið verður
í borg óttans þar sem komið verður við í stórfyrirtæki og skoðað
þar allt hátt og látt. Að því loknu verður haldið í Valhöll þar sem
boðið verður uppá veitingar. Yfir borðhaldinu munu kappar á borð
við Gísla Martein stjórna smá umræðu. Að því loknu ligggur ferðin
heim á leið og mun rútan stoppa fyrir utan Breiðina þar sem gleði á
efrihæðinni mun standa fram eftir kvöldi. 18 ára aldurstakmark er
inná efrihæðina, en hún mun vera opin öllum frá hálf 12.
Skráning er hafin hjá Agga í síma 8664093 eða í tölvupósti á
aggi.skebba@gmail.com
Rúnar Óla kveður að sinni.
»
12.04.2006 22:34:42 / Olason
Já það eru eflaust margir sem eru búnir að heyra af þessu en
allavegana þá er undirritaður að skella sér í framboð í aðalstjórn
NFFA og eru það ég sem er að bjóða mig fram sem Fjárhirði NFFA, Þór
Birgis verður Formaður, Steinun Eik Egillsdóttir verður ritari og
svo að lokum Ragnheiður Friðriksdóttir sem verður
meðstjórnandi.
Og er það von mín að þið sem lesið þetta blogg sjái sér fært um
að setja X við EGÓ í komandi nemendafélagskosningu og setja okkur
þar með í stjórn NFFA og gera næsta vetur að vetri sem fólk man
eftir...
Rúnar Ólason kveður að sinni.
»
11.04.2006 00:51:19 / Olason
Ég sit hérna heima í stofu klukkan ný orðin 12 og það eina sem
mér kemur upp í hugan er að tala um lífið og tilveruna mína
þ.e.a.s. hversu ömurleg hún hefur verið síðustu misseri.
En allavegana hafa síðustu misseri ekki verið þau
hamingjuríkustu í mínu lífi og með hverjum deginum hefur maður í
raun sokkið dýpra og dýpra í eymd og volæði einmitt þegar maður
telur sig ekki geta sokkið lengra heyrir maður einhvað sem dregur
mann lengra niður og var ég að heyra eitt áðan sem gerði það að
verkum að ég verð einfaldlega að létta af mér.
Sá sem mælti einhvertíman ,,Peningar geta ekki keypt hamingju”
hitti svo sannarlega naglan á höfuðið, þar sem ég er ekki beint
illa staddur í fjármálum en gerir það að verkum að ég sé
hamingjusamur??? Alls ekki það er nú langt í frá.
En hérna sit ég í myrkrinu heima í stofu á Reynigrundinni og var
að hugsa með mér hversu margir þekktu í raun Rúnar Ólason og þá er
ég ekki að meina vita hverjir ég er heldur actually þekkja mig og
ég held að það sé hægt að telja þá á fingrum hægri handar minnar
því er nú ver og miður.
Allavegna eins og þeir 3 sem lesa þetta blogg vita þá flutt ég á
skagann í haust og fór ég að telja saman þá sem ég tel vini mína og
eftir þá talningu kom talan 1, ég þekki fullt af fólki héðan að
skaganum hef miklar ættir að rekja hingað og eyddi mjög miklum tíma
hérna á Akranesi á mínum yngri árum. Svo renndi maður yfir
Borgarnesið og þar aftur eru mjög fáir VINIR sem ég á það, ekki
einu sinni allir sem sáu um gerð síðunar Borgarnesbasket en þar eru
aftur á móti margir kunningjar og t.d. þegar maður lætur reyna á að
segja einhverja sögu innan ,,vinahópsins” þá hafa þeir reyndar næga
virðingu fyrir manni og leyfa manni að hætta að tala og svara svo
með mjög áhugalausu Frábært og byrja svo að tala um einhvað allt
annað eins og ég hafi ekki verið þarna. Svo er komið að Hólminum
góða en þar er allt annað upp á teningnum en þar leið manni
actually vel og þar var maður metin að verðleikum sem
einstaklingur.
Svo akkurat þessa stundina þá á rosalega vel við mig lína sem ég
hef stundum sagt ,,Life´s a bitch then you die” en ég geri ráð
fyrir að sá maður sem mælti þau orð hafi verið að lifa svipuðu lífi
og ég er að gera þessa stundina.
En allavegna láta þetta nægja að sinni og vona að þetta létti
einhvað á mér andlega byrgði sem ég hef á mér um þessar mundir.
Ætla að enda þennan pistil á því að vitna í Dag Hemmarskjold
,,Biddu um að einmannleikin hvetji þig áfram til að
finna einhvað til að lifa fyrir og nógu mikilfenglegt til að deyja
fyrir”
»
02.04.2006 21:08:23 / Olason
Jæja góðir hálsar, mikið búið að vera að gerast frá síðustu
færslu en það er til dæmis byrjaði einn einstaklingur að kalla mig
Brúnkzenegger af hverju veit ég ekki Arnar???? Af hverju???
Svo byrjaði maður í Boot Camp á miðvikudaginn eftir ítrekaðar
áskoranir frá Boot Camp þjálfaranum en ég get ekki sagt annað en
þetta er algjör djöfull og dauði þessir tímar en ég held áfram í
þessu að því að ég fékk loforð um að þetta virkar, þannig ef það
reynist ekki svo þá veit ég ekki hvað ég geri þannig ég ætla bara
að treysta djöflinum
Svo var maður nánast vakinn með undarlegri símhringingu um
hádegið en það var Heiðar Lind Hansson sem var hinu meginn á
línunni að biðja mig um að spila með strákunum í Skallagrím b á
móti Fjölni b í úrslitakeppni b-liða en ekki var leikurinn uppá
marga fiska hjá okkar mönnum þar sem þetta endaði með 11 stiga tapi
og var Bjarni allt í öllu hjá okkar mönnum með 28 stig en það sem
leiðinlegra var að ég tapaði í keppninni við Lalla Land Rover um
hvor okkar yrði frákastahærri í leiknum og kenni ég um að ég fékk
ekki nógu margar mínutur og hann fékk of margar 
Svo er ekki laust við það að manni sé aðeins farið að hlakka til
sumarsins þar sem maður er að fara í hólminn að vinna og spila
fótbolta með Snæfelli í 3. deildinni og er smá fílingur eins og
okkur sé hennt í djúpu laugina þegar maður sér hvaða liðum maður er
í riðli en þarna eru lið eins og Skallagrím þar sem maður veit að
þeir eru alltaf sterkir með menn eins og Chucks og Bibi Fernandez
innanborðs, svo eru Tindastólls menn í riðlinum þar sem þeir voru
að falla úr 2. deild þá má gera ráð fyrir þeim sterkum en þar er
Sveinbjörn Ásgrímsson við stjórnvölinn en hann spilaði með
Skallagrím þegar þeir voru í úrvalsdeild, svo eru Kára menn héðan
af skaganum og einnig hugsa ég að það sé hægt að gera ráð fyrir
þeim sterkum, þannig ég geri ráð fyrir miklum markaleikjum en því
miður þá held ég að þau komi öll á okkur 
en er ekki málið bara að láta gott heita núna og enda þetta á
orðum David Gray
"Say hello then wave goodbye"
»
11.03.2006 03:03:12 / Olason
Æji shit ég ætlaði að blogga eftir Herrakvöld ÍA
(klassastund) en fattaði svo að ég v ar ekki neinu ástaqndi til
þess vegna bakkusar
ohhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
hhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
hhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
hhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
Kvaðja Rínmar ´)la
»
07.03.2006 08:56:13 / Olason
Jæja, kallinn búinn að kveða sér til hljóðs aftur eftir ágæta
bið alveg hreint. Gerði maður það sér til skemmtunar í gær að horfa
á Wigan-Man Utd en það var ekki mikil skemmtun sem hlaust af þeim
leik en Man U náði 3 stigum mjög óverðskuldað, en svona er
fótboltinn allt getur gerst, eins og sást í úrslitaleik
meistaradeildarinnar þegar United tóku þátt í honum, 2 mörk á 90+
mín og vinna meistaradeildinna.
En já opnir dagar voru í skólanum í síðustu viku og var
árshátíðin einnig þar á fimmtudeginum og get ég ekki sagt annað en
að það hafi verið hin besta skemmtun og var maður bara nokkuð hress
þar og mæli ég með að fólk tékki á myndunum sem eru á
borgarnesbasket myndasíðunni og hefur maður verið sakaður að vera
krútt á einni myndinni (ohhhhhhhh) ekki alveg sáttur með það, en
that´s life comes with it´s own pros ´n´ cons.
Já svo var víst planið að fara með strákana sem ég er að þjálfa
í borgarnes til að spila æfingaleik á eftir en það ætlar að ganga
einhvað erfilega þar sem mann vantar bílstjóra og einnig vantar mig
leikmenn þar sem þeir eru allir veikir þannig það er spurning að fá
leiknum frestað um viku eða svo, en það kemur allt í ljós.
Já nú getur maður ekki gert ráð fyrir því að Beggi bróðir muni
nokkur tíma vorkenna mér aftur en þannig er mál með vexti að hann
var um helgina að taka þátt í Vasa-skíðagöngunni en það er 90 km
skíðaganga sem nú fór fram í 15 stiga frosti og til að bæta ofan á
það þá fór þetta fram í þokkalegri hæð þannig en hann kom í mark
númer 11465 í röðinni og var tíminn hans 11:12:00 en hann var 11
klukkustundir og 12 mínutur að klára þetta, hvaða heilvita maður
gerir þetta að ganga í rúma 11 tíma í -15°C. En já hann hringdi í
mig í morgun þegar ég var á leiðinni í tíma hjá Steingrím Braga og
var maður að lýsa yfir óánægju sinni yfir því að hann væri í fyrsta
tíma hjá mér en þá kom brósi með þessa háfleygu setningu ,,Hættu
þessu væli kellinginn þín, vorkenni þér ekki fyrr en þú ert búinn
með 11 tíma straight hjá honum". Jæja, þetta skal ég muna
helvítið þitt 
En já mæli með laginu Demons með fyrrum Westlife drengnum Brian
McFadden en er undirritaður að fíla þetta lag í botn þessa dagana
og á textinn í þessu lagi að vissu leyti við mig en.
En já það er spurning um að láta þetta nægja en tilvitnun
færslunar fer til Benjamin Franklin
,,energy and persistence will conquer all things´´
Rúnar Óla kveður að sinni
»
28.02.2006 23:25:22 / Olason
úfffff.
Get ekki sagt annað en
þetta um það sem ég var að horfa á í sjónvarpinu áðan en það var
leikur Íslands á móti Trinidad og Tobago (hvernig í fjandanum
skrifar maður þetta???). Varnarleikur Íslenska liðsins var
alveg gjörsamlega út í hött í þessum leik vissu ekkert hvað þeir
voru að gera og ekki frá því að, tjah ég ætla ekki að klára þessa
hugsun til enda.
En já núna er kallinn í
óðaönn að skrifa grein inná einhverja ÍA síðu til að segja frá
hversu sigursæll þjálfari maður sé þar sem liðið mitt eins og ég
sagði frá síðast var að komast upp um riðill í íslandsmóti
yngriflokka og er ég eins og er sigursælasti Þjálfari ÍA sem hafa
þjálfað á þessu ári .
En annað sem ég
einfaldlega var að tjá mig um var að fá til baka einkunn úr
enskufyrilestrinum sem ég var með ásamt Vali O. Bjarnasyni
skagamanni og Daða sem er að ég held sé núna með Sigurrós (eða er
hún kannski með kristjáni núna??? hver veit, þetta er eins og
versta sápa) sem hélt varla vatni yfir Heiðari hérna um árið
en ef það eru einhverjir sem eru ekki alveg að koma þessu fólki
fyrir sig þá er Daði alltaf undir klukkuni í horninu, þarna fatta
eflaust allir um hvern er verið að tala hef einnig hef heyrt um þau
töluð og verð ég að segja að þetta sé svona personal favorite hjá
mér en það nafn er kúksmakkararnir en ekki veit ég hvaða
sorakjaftur kom með það. En ég fékk fyrir verkefnið 9 og verð ég að
segja að ég sé bara nokkuð sáttur með það nema hvað að Helena
Valtýs gaf mér 9,5 og voru nemendur einnig að gefa einkun og drógu
mig niður svo var valmöguleiki að commenta á fyrirlesturinn og
hljóðuðu flest commentin svona: Good job guys, very funny (enda
mynd af David Hasselhoff í lokin), Very Informative en svo var
eitt commentið sem stóð upp úr en það hljómaði nokkurn vegin svona:
Too hard to understand because theire voices were too
deep... Aldrei hef ég verið sakaður um að vera of
djúpraddaður áður en já svona er þetta það er ekki á allt
kosið í lífinu.
Svo eru það opnir dagar
á morgun og næstu daga og árshátíðin á fimmtudaginn sem minnir mig
á það að ég þarf að fara að kaupa mér ný jakkaföt þar sem
jakkafötinn mín rifnuðu á einhvern dularfullann hátt á Árshátíð
Snæfellinga en ég man ekki alveg hvernig það gerðist, aðallega
vegna ölvunar sem ég man það ekki. En þar hitti maður fyrir marga
góða kalla á við Árna Ásgeirs sem setti bösser í sméttið á
Skallagrímsmönnum hérna um daginn og Villa Péturs sem lét mig vita
af því að hann sé búin að lesa hvern einasta pistill á blogginu
afturábak og áfram og kemur nýr pistill hingað fyrir hann núna og
hér með tileinka ég pistilinn Villa Péturs einnig væri
gaman að fá að sjá comment frá þér Villi og líka ykkur hinum sem
lesa þetta en segja ekki orð, hef á síðustu dögum verið að fá að
vita um nokkra sem lesa bloggið sem þegja og er ekki málið að losa
um málbeinið og skilja eftir sig eins og eina setningu eða
svo.
Tilvitnun þessarar
færslu verður ekki tilvitnun eins og hún hefur verið hjá mér en það
verður lagatexti eftirtónlistar snillingsinn John Lennon og
kemur textinn úr laginu Imagine.
Imagine there's no
heaven
It's easy if you try
No hell below us
Above us only sky
Imagine all the people
Living for today...
Imagine there's no countries
It isn't hard to do
Nothing to kill or die for
And no religion too
Imagine all the people
Living life in peace...
You may say I'm a dreamer
But I'm not the only one
I hope someday you'll join us
And the world will be as one
Imagine no possessions
I wonder if you can
No need for greed or hunger
A brotherhood of man
Imagine all the people
Sharing all the world...
You may say I'm a dreamer
But I'm not the only one
I hope someday you'll join us
And the world will live as one
Hrikalega flottur texti en er þetta
hugsanlega lengsti pistill sögunnar hérna á
blog.central.is/runarola og ætla ég að láta þetta nægja
núna
Rúnar Óla kveður
»
27.02.2006 09:57:42 / Olason
Já Rúnar Óla komin aftur í hús eftir frábæra helgi íþróttalega séð.
Helgin byrjaði á því að á laugadaginn á Selfoss þar sem ég var að
fara með liðið mitt að spila í C-Riðli 7.flokks karla í
körfuknattleik og fór það svo að við unnum mótið með 4 sigurleiki
og engan tapaðan og ekki get ég kvartað yfir því og er ég með 100%
vinnigshlutfall sem Head coach, geri aðrir betur  . Svo þegar
var komið heim eftir þetta tók maður sig til og settist fyrir
framan kassann að horfa á úrslit deildabikarsins ekki að það sé
einhvað til að monta sig yfir en titill engu að síður, that´s life,
svo til að pútta the icing on the cake... Skallagrímur-Snæfell
sigur minna manna í þessum leik mun halda mér gangandi í gegnum
bögg frá strákunum í langan tíma hugsa ég og bara Áfram Snæfell.
hafa þetta bara stutt núna þar sem tímin hjá Steingrími er að
klárast en tilvitnunin fer til Villa leikmanns hjá mér í 7.flokki
,,Gaur það er hægt að leggja flugvöll á enninu á þér"
Rúnar Óla, kveður að sinni
»
11.02.2006 22:57:42 / Olason
Já Helvítið hún Sandra Dögg tók upp á því að klukka mig þannig
hérna er þetta bara.
4 störf sem ég hef unnið um æfina
1.Áhaldahús
2.Upplýsingamiðstöð Stykkishólmsbæjar
3. Sundlaugarvörður (Jackpot )
4. Körfubolta þjálfari
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og
aftur
1. National Treasure
2. Bravehart
3. Just Friends 
4. 40 year old Virgin
4 staðir sem ég hef búið á
1. Þórólfsgata 21A (Nesið)
2. Ásklif 4a (Hólmurinn)
3. Reynigrund 44 (Skaginn)
4. Skólabraut 31 (Skaginn)
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
1. Lost
2. Threshold
3.One Tree Hill
4. The OC
4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan
blogg)
1. www.mbl.is
2. www.kbbanki.is
3. www.kki.is
4. pluto.fva.is
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
1. Mallorca
2. Danmörk
3. Þýskaland.
4.Tékkland
4 matarkyns sem ég held uppá
1. Hólmari (Hamborgari á Narfeyrarstofu í
Hólminum)
2. Bernaiseborgari (Aftur á Narfeyrastofunni)
3. Lobster Alfredo Pasta á Ruby Thuesday
4. Subway er að koma sterkur inn
4 staðir sem ég vildi heldur vera á
núna.
1. Balli í Grundarfirði
2. Sofandi
3. djamminu erlendis
4. Tjah, hver veit???
8 bloggarar sem ég klukka
Ætla mér ekki að klukka neinn þar sem þetta
klukkdæmi er orðið dálítið þreytt...
Enska Skáldið og gagnrýnandinn W.H. Auden fær tilvitnun
færslunar
No Opera plot can be sensible, people do not sing when
they are feeling sensible
Næsti pistill verður tileinkaður Villa Péturs Grundfirðing með
meiru svo að hann hafi einhvað að gera í vinnunni
Rúnar Óla Kveður.
»
Síður: 1 2
|
|